Starfsmannahald í Rjúpnahæð

Hjá okkur í Rjúpnahæð hafa orðið smá breytingar á starfsmannahaldi, Karen Ósk er hætt hjá okkur, hún er að klára námið sitt og fer að vinna á spítalanum, óskum við henni góðs gengis á nýjum vettvangi. Kamila hefur verið ráðin inn á Spóahreiður og Valdís Anna inn á Lóuhreiður, bjóðum við þær hjartanlega velkomnar. Rúnar Þórir matráður er einnig hættur hjá okkur og óskum við honum góðs gengis á nýjum vettvangi.