Skemmtilegar fréttir í Rjúpnahæð

Í byrjun maí byrjaði nýr matráður hjá okkur í Rjúpnahæð hún Joana Manuela, Joana er frá Portúgal en hefur búið í 17 ár á Íslandi og er næringafræðingur að mennt. Hún hefur brennandi áhuga á hollri matargerð og hafa börnin gefið matnum hennar toppeinkun. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna til okkar. Okkur langar að tengja matráðinn meira við starfið og foreldrana og kemur hún til með að setja af og til inn fréttir og myndir af matnum.