Jólaundirbúningur á Rjúpnahæð.

Jólaundirbúningur á Rjúpnahæð er í fullum gangi. Jólavinastund var svo í dag þar sem kveikt var á kerti númer 2. Svo er Jólaball og Jólamatur næsta miðvikudag 8. desember.
Börnin hafa í vikunni verið að undirbúa jólin með alls konar föndri. Þar sem jólaverkstæði var ekki í ár vegna Covid þá höfum við tekið þessa vikuna að undirbúa jólin, jólapappír, jólaskraut og annað jólajóla hefur verið gert inni á deildum.
Það var svo jólavinastund í dag og kveikt á kerti númer tvö sem heitir Betlehemskerti. Það er alltaf næst elsta deildin sem sér um vinastundina um jólin og er það í höndum Álftahreiðurs þessa dagana.
Svo í næstu viku munum við skreyta jólatréð á mánudag og þriðjudag, svo á miðvikudaginn 8. desember er jólaball og jólamatur hjá okkur á Rjúpnahæð.
Fréttamynd - Jólaundirbúningur á Rjúpnahæð. Fréttamynd - Jólaundirbúningur á Rjúpnahæð. Fréttamynd - Jólaundirbúningur á Rjúpnahæð. Fréttamynd - Jólaundirbúningur á Rjúpnahæð.

Smellið á myndir til að sjá þær í stærri upplausn