Þorrablót á morgun föstudag

Líkt og í fyrra þurfum við að hafa bóndadaginn með breyttu sniði þar sem við getum ekki boðið pöbbum/öfum/frændum til okkar þann dag.
Við verðum að sjálfsögðu með þorrablót á morgun þar sem verður boðið upp á allskyns góðgæti til að smakka, það verður gaman að sjá hverjir treysta sér í hákarlinn. Undanfarnar tvær vikur hefur verið fræðsla inni á deildum um gömlu tímana, hvernig tímarnir hafa breyst, hvað er í boði í dag sem var ekki í boði í gamla daga og endum svo á þorrablóti.

Alltaf líf og fjör í Rjúpnahæð
Fréttamynd - Þorrablót á morgun föstudag Fréttamynd - Þorrablót á morgun föstudag

Smellið á myndir til að sjá þær í stærri upplausn