Leikskólafræðinemar hjá okkur í Rjúpnahæð

Í dag byrjuðu þrír leikskólafræðinemar í vettvangsnámi hjá okkur þær heita Anna Fanný Sigurðardóttir, Unnur Guðmundsdóttir og Elva Dögg Sigurðardóttir, verða þær hjá okkur næstu fjórar vikurnar. Stelpurnar eru á þriðja ári í náminu og koma til með að vinna verkefni í leikskólanum. Við bjóðum þær hjartanlega velkomnar til okkar.