Blær komin heim frá Spáni

Í morgun var skemmtileg uppákoma þegar Unnar lögreglumaður kom í heimsókn til okkar í leikskólann. Blær okkar fór nefnilega til Spánar í sumar og þegar hann lenti aftur á Íslandi missti hann af rútunni og ákvað að labba aftur til Reykjavíkur. Það er nú svolítið langt að labba og endar með því að hann villtist í Hafnarfirði, hann náði að vinka Unnari löggu sem kom honum til bjargar. Blær var orðin svo svangur og fékk hann samloku og svala hjá Unnari löggu. Blær vildi endilega komast aftur í Rjúpnahæð og kom Unnar lögga með hann í morgun, mikið sem allir voru ánægðir að sjá Blæ og Blær ánægður að komast heim. Krakkarnir sungu fyrir Unnar í morgun og svo fór hann í heimsókn inn á allar deildir og talaði við krakkana sem vakti mikla lukku.