Samstaða



Okkur langar að þakka ykkur kæru foreldrar fyrir alla þá samstöðu og samheldni á þessum ótrúlegustu tímum þar sem við stöndum eingöngu frammi fyrir áskorunum og ryðjum í burtu hindrunum, þið eruð frábær foreldrahópur <3


Í ljósi aðstæðna þá eru smá breytingar á hvernig tekið er á móti börnunum klukkan átta morgnana, til þess að lágmarka fjölda í fataklefanum, eingöngu mega þrír foreldrar ásamt börnum vera samtímis í fataklefanum, foreldrar láta börnin í hendur á deildarstarfsmanni við hurðina inn á gang sem verður opin. Tveir starfsmenn verða úti á milli 8 og 8:30, einn við hvora deild. Þetta gerum við til að þess að lágmarka áhættu á smiti.