Lestrarátak í Rjúpnahæð

Í dag hefjast menningardagarnir okkar í Rjúpnahæð. Við í Rjúpnahæð erum mjög dugleg að lesa í leikskólanum og vonandi eru allir duglegir við það heima líka. Okkur langar að gera lesturinn sýnilegri fram að Degi íslenskrar tungu sem er þann 16. nóvember n.k. og búa til beinafjall fyrir hann Lubba okkar. Við hvetjum ykkur því til þess að lesa heima með börnunum og búa til bein fyrir Lubba.