Menningadagar

Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur í vikunni og höfum við fengið til okkar marga góða gesti ásamt uppákomum deildanna. Í þessari viku höfum við fengið til okkar Kristján Hreinsson heimspeking og skáld sem las fyrir okkur upp úr bókinni Furðusögur, Páll Óskar og Monika komu og spiluðu nokkur lög fyrir okkur, Guðný sellóleikar kom og spilaði fyrir okkur og hafa Arnar-, Lóu- og Spóahreiður verið með uppákomu. Ótrúlega skemmtilegir dagar, hægt er að skoða nokkrar myndir hér: https://rjupnahaed.kopavogur.is/deildir/menningadagar/