Annar "Blaðamannafundur" Rjúpnahæðar

Á föstudaginn var haldinn annar blaðmannafundur leikskólans þar Maja og Heiða sögðu frá því sem búið væri að gera í Undralandi og í sandkassafjöri í sumarskólanum og fóru yfir hvað væri framundan í ræktuninni hjá okkur í Rjúpnahæð. Sóley Arna fór svo yfir Uppgövunarsvæðið sem hefur verið mjög vinsælt í sumar, hún sagði frá því sem væri í boði þar og sýndi þeim smá sem er í boði á svæðinu. Sumarskólinn hefur verið virkilega skemmtilegur og margt fjölbreytt í boði sem hefur vakið mikla lukku. Í lok fundarins sungum við saman.
Fréttamynd - Annar "Blaðamannafundur" Rjúpnahæðar Fréttamynd - Annar "Blaðamannafundur" Rjúpnahæðar Fréttamynd - Annar "Blaðamannafundur" Rjúpnahæðar Fréttamynd - Annar "Blaðamannafundur" Rjúpnahæðar Fréttamynd - Annar "Blaðamannafundur" Rjúpnahæðar

Smellið á myndir til að sjá þær í stærri upplausn