Menningadögum að ljúka

Nú er menningadögum að ljúka hjá okkur. Eins og í síðustu viku höfum við fengið til okkar marga góða gesti Bergrún Íris rit-og myndhöfundur kom til okkar og las upp úr tveimur bókum, Ró las hún fyrir allan hópinn og Langelstur að eilífu las hún fyrir elstu tvær deildirnar í leikskólanum. Ingibjörg Kristín rithöfundur kom og las fyrir börnin upp úr bók sinni Krummi Króm og Regína Ósk og Svenni komu til okkar og sungu. Þrasta-, Álfta-og Krummahreiður voru einnig með uppákomur fyrir krakkana, enduðum við menningavikurnar í dag með vinastund. Meiriháttar hvað allir voru duglegir að lesa bækur heima og söfnuðust fullt af Lubba beinum á öllum deildum. Yndislegar menningavikur að baki hjá okkur.

Það má sjá nokkrar myndir hér: https://rjupnahaed.kopavogur.is/deildir/menningadagar-vika-2/