Mannauður Rjúpnahæðar

Við erum svo lukkuleg hér í Rjúpnahæð að vera með svo frábæran, flottan og fjölbreyttan starfsmannahóp, núna í sumar hafa orðið nokkrar breytingar hjá okkur, Tinna Hrönn og Karen Sif hættu hjá okkur fyrir sumarfrí þær halda á vit ævintýranna á erlendri grund, Kristín Þóris hætti einnig í sumar vegna aldurs og Sandra og Birta Nótt voru hjá okkur í sumar en eru farnar aftur í skólann sinn, við þökkum þeim kærlega fyrir samstarfið og gæfan fylgi þeim á nýjum stöðum.
Karen Ósk, Sóley Arna, Saga og Steindóra Huld eru allar að fara áfram í námið sitt, en við erum svo heppin að þær ætla að halda áfram að vinna með skóla hjá okkur.
Valkyrja Helga og Eyrún Huld byrjuðu að vinna hjá okkur í vor og verða áfram, eftir sumarfrí byrjaði Linda að vinna hjá okkur og núna í september kemur Helga Margrét til okkar aftur.