Leikskólinn hlýtur orðsporið 2021

Í tilefni degi leikskólans var leikskólastigið veitt orðsporið 2021. Orðsporið var veitt í áttunda sinn og er orðsporið hvatningarverðlaun sem er veitt þeim sem þykja hafa skarað fram úr í því að efla orðspor leikskólastarfs í landinu og hafa unnið ötullega í þágu leikskóla og leikskólabarna.

Leikskólinn hlýtur Orðsporið 2021
Dagur leikskólans er 6. febrúar en þar sem hann ber upp á laugardag var honum fagnað víða um land fyrir helgi. RannUng efndi til áhugaverðrar netráðstefnu 5. febrúar þar sem menntamálaráðherra tilkynnti um handhafa Orðsporsins 2021. Orðið handhafi er hér í fleirtölu því hvatningarverðlaunin hlýtur leikskólastigið í heild sinni; leikskólakennarar, stjórnendur og starfsfólk leikskólanna. Verðlaunin eru óvenjuleg þetta árið en ákveðið var að veita leikskólastiginu í heild Orðsporið.
Það var mat valnefndar um Orðsporið að leikskólakennarar, stjórnendur og starfsfólk leikskólanna hafi sýnt ótrúlega elju og fagmennsku á tímum COVID-19. Leikskólarnir hafa unnið afar vel úr erfiðum aðstæðum með velferð og nám barna í algjöru fyrirrúmi.
¿Leikskólastigið hefur staðið í ströngu undanfarið ár og mikið hefur mætt á kennurum, stjórnendum og öllu starfsfólki leikskólanna við að halda leikskólastarfi gangandi. Unnið hefur verið algjört þrekvirki á leikskólastiginu og fyrir það ber að þakka. Ég geri mér grein fyrir því að þetta hefur verið á tímum mjög erfitt. Þess vegna vil ég þakka öllum þeim sem starfa á leikskólastiginu fyrir þeirra vinnu. Þið eigið svo sannarlega skilið Orðsporið 2021,¿ sagði Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra þegar hún tilkynnti um verðlaunin.
Sigurður Sigurjónsson, formaður Félags stjórnenda leikskóla, sagði í sínu ávarpi að leikskólarnir væru vel að Orðsporinu komnir eftir að hafa staðið sig afburða vel í verkefnum liðins árs.
Að Orðsporinu standa Félag leikskólakennara, Félag stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga og Heimili og skóli.
Við óskum leikskólakennurum, stjórnendum leikskólanna og öllu starfsfólki innilega til hamingju með Dag leikskólans og hvatningarverðlaunin Orðsporið.

Sjá nánar á vef KÍ: https://www.ki.is/um-ki/utgafa/frettir-og-pistlar/frettir/2021/leikskolinn-hlytur-ordsporid-2021/