Viðburðarík vika

Sólrík, skemmtileg og viðburðarík vika að líða. 
Vikan er búin að einkennast af míkilli gleði og útiveru lögð hefur verið áhersla á dansfjör og skemmtilega stemmingu.Starfsmenn og börn hafa verið í vorhreingerningum að hreinsa til í matjurtagarðinum, þrífa, sópa og skúra litlu kofana. Sópa stétt á útilóð og sortera og hreinsa til í útiskúr. Skemmtilegur undirbúningur fyrir sumarskólann.

Á miðvikudaginn fóru 19 starfsmenn í bólusetningu og nær allir veikir í gær því urðum við að loka leikskólanum kl 14:00 gær. Við þökkum ykkur kæru foreldrar fyrir ykkar stuðning.