Þrettándagleði í Rjúpnahæð

Þrettándagleði í Rjúpnahæð
Við héldum upp á þrettándann í dag og kvöddum jólin við hátíðlega athöfn við varðeld í morgun. Í vikunni hefur fræðsla og umræða um þennan dag átt sér stað og af hverju við höldum upp á hann. Gerð voru hugarkort inni á deildum í þeim tilgangi að fá fram sýn barnanna. Þau voru með það á hreinu að þrettándinn táknar að jólin séu búin, að þá séu jólasveinarnir farnir aftur heim til sín og á eldri deildunum fræddust þau um gamla íslenska þjóðtrú um talandi kýr, álfa sem flytjast búferlum og ýmislegt fleira.

Elstu börnin í Rjúpnahæð hafa í gegnum tíðina fengið það hlutverk að saga jólatréð niður og syngja eitt lag með stjörnuljós við hönd. Þetta árið voru það börnin á Krummahreiðri sem fengu þetta skemmtilega verkefni. Þau sungu lagið "Jólasveinar einn og átta" og síðan sungu allir saman þrjú lög til að kveðja jólin með stæl. Á meðan ljúfir tónar fylltu garðinn brann jólatréð í mikilfenglegri brennu í miðjum hringnum.

Börnin á Krummahreiðri höfðu svo komið með þá hugmynd að brjóta upp daginn með því að horfa á bíómynd og fá snakk eða ís með. Börnin héldu fund með deildarstjórum þar sem þau rökstuddu hugmynd sína og komist var að þeirri niðurstöðu að láta börnin kjósa hvort þau vildu frekar. Ís varð fyrir valinu. Eftir hádegismatinn fengu því allir á Mýri ís og horfðu svo á skemmtilegu myndina "Encanto". Frábær dagur og gleðin var allsráðandi! 
Fréttamynd - Þrettándagleði í Rjúpnahæð Fréttamynd - Þrettándagleði í Rjúpnahæð Fréttamynd - Þrettándagleði í Rjúpnahæð Fréttamynd - Þrettándagleði í Rjúpnahæð Fréttamynd - Þrettándagleði í Rjúpnahæð Fréttamynd - Þrettándagleði í Rjúpnahæð

Smellið á myndir til að sjá þær í stærri upplausn