Dagur leikskólans

Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins í 16. sinn. Við á Rjúpnahæð héldum uppá daginn eins og ár hvert. Eins og áður hefur komið fram fá börnin alltaf að kjósa hvað er í matinn og var pítsa verðugur sigurvegari þetta árið eins og undanfarinn ár, einnig varð vann kaka sína kosningu og var þá skúffukaka í kaffitímanum.
Allir voðalega ánægður að fá pizzu með skinku, hakki eða osti. Kakan slær svo alltaf í gegn hjá flestum börnunum.
Við héldum svo Vinastund í tilefni dagins og fékk hver deild að velja eitt lag til að syngja í vinastund. Það voru löginn, "Vinur minn" " Kalli litla könguló" "Álfadrottning" "Litalagið" og "

Laugardaginn 6. febrúar er dagur leikskólans í 16. sinn og er hann haldinn hátíðlegur á flestöllum leikskólum landsins en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Leikskólar landsins hafa á undanförnum árum haldið upp á dag leikskólans með margbreytilegum hætti og þannig stuðlað að jákvæðri umræðu um leikskólastarfið.
Látum Dag leikskólans verða okkur hvatningu til að kynna okkur það mikilvæga starf sem þar fer fram.
Fréttamynd - Dagur leikskólans Fréttamynd - Dagur leikskólans Fréttamynd - Dagur leikskólans

Smellið á myndir til að sjá þær í stærri upplausn