Rjúpnahæð síðustu dagar, Öskudagur og fleira.

Bolludagur, sprengidagur og öskudagur eru haldnir hátíðlega á Rjúpnahæð ár hvert.

Á bolludeginum í Rjúpnahæ er haldið í þá hefð að börnin fá sér bollu bæði í hádeginu og kaffinu. Í hádeginu þetta árið voru fiskibollur og svo rjómabollur í kaffinu. Börnin eru alltaf allsæl með bollurnar og borða þær með bestu lyst.

Á sprengideginum í Rjúpnahæð var aðeins breytt útaf vananum og haft kjötsúpu í staðinn fyrir saltkjöt og baunir en það var samt reynt að borða alveg þangað til maginn springur. Það tókst hins vegar engum að láta magann sinn springa þetta árið.

Öskudagurinn er einn stærsti dagurinn í Rjúpnahæð ár hvert, þá rennur loksins sú stund upp að börnin fá að klæðast búningunum sem þau hafa hannað og búið til undanfarnar vikur. Það var mikill undirbúningur þetta árið og höfðu börnin mjög mikill áhrif hvernig leikskólinn var skreyttur í ár. Það sáust allskonar fígúrur, ofurhetjur, prinsessur og dýr á deildum og göngum leikskólans í dag.
Það var slegið köttinn úr tunnunni og úr tunnunni komu fullt af snakkpokum. Eftir snakkátið var svo dansað þar sem Hlynur kennari á Krummahreiðri var í fremstu röð að sem DJ. Svo eftir dansinn var slegið í pylsupartý þar sem börnin borðuðu sína pylsu þar sem þau vildi.

Hér að neðan eru svo nokkrar myndir bæði af undirbúningnum deginum áður og af bolludegi, sprengidegi og öskudeginum sem heppnaðist mjög vel.
Fréttamynd - Rjúpnahæð síðustu dagar, Öskudagur og fleira. Fréttamynd - Rjúpnahæð síðustu dagar, Öskudagur og fleira. Fréttamynd - Rjúpnahæð síðustu dagar, Öskudagur og fleira. Fréttamynd - Rjúpnahæð síðustu dagar, Öskudagur og fleira. Fréttamynd - Rjúpnahæð síðustu dagar, Öskudagur og fleira. Fréttamynd - Rjúpnahæð síðustu dagar, Öskudagur og fleira. Fréttamynd - Rjúpnahæð síðustu dagar, Öskudagur og fleira. Fréttamynd - Rjúpnahæð síðustu dagar, Öskudagur og fleira. Fréttamynd - Rjúpnahæð síðustu dagar, Öskudagur og fleira. Fréttamynd - Rjúpnahæð síðustu dagar, Öskudagur og fleira. Fréttamynd - Rjúpnahæð síðustu dagar, Öskudagur og fleira. Fréttamynd - Rjúpnahæð síðustu dagar, Öskudagur og fleira. Fréttamynd - Rjúpnahæð síðustu dagar, Öskudagur og fleira. Fréttamynd - Rjúpnahæð síðustu dagar, Öskudagur og fleira. Fréttamynd - Rjúpnahæð síðustu dagar, Öskudagur og fleira. Fréttamynd - Rjúpnahæð síðustu dagar, Öskudagur og fleira. Fréttamynd - Rjúpnahæð síðustu dagar, Öskudagur og fleira. Fréttamynd - Rjúpnahæð síðustu dagar, Öskudagur og fleira.

Smellið á myndir til að sjá þær í stærri upplausn