Sumarhátíð Rjúpnahæðar

Á fimmtudaginn verður sumarhátíð leikskólans haldin. Í ár verður hún með breyttu sniði og foreldrum og systkinum ekki boðið. Við byrjum daginn snemma eða frá því að við opnum sumarskólann klukkan 10:00. Hér fyrir neðan má sjá dagskrá sumarhátíðarinnar.

Dagskrá:

10:00-11:10   Sumarskólinn opnar og er opinn allan daginn
                       Andlitsmáling í boði

11:10-12:00   Grillaðar pylsur í boði foreldrafélagsins

14:00-14:15   Sumarhátíðin formlega opnuð við varðeld og vinastund

14:15             Árlegt Rjúpnahæðarhlaup
14:30             Leikhópurinn Vinir koma í heimsókn og skemmta okkur ¿¿

14:50-15:15   Frjálst svæðaval í sumarskólanum. Kleinur, ávextir, mjólk og vatn í boði

Hlökkum til að eiga skemmtilegan dag saman <3