Jólakveðja frá Rjúpnahæð


Okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár, þökkum fyrir góðar stundir á árinu sem er að líða


JÓL á RJÚPNAHÆÐ

 

Okkar skóli - öllum kær,

hann ávallt forsjón geymi,

hver lítið barn hér bara fær

bestu vernd í heimi.

 

Við setjum fræ í frjóan svörð

svo fá þau okkar mildi

því starfsfólk allt hér stendur vörð

um sterk og fögur gildi.

 

Og lýðræðið hér lifir enn,

af leiknum iðar skólinn.

Við óskum þess að allir menn

nú eigi frið um jólin.

                           Kristján Hreinsson


Jólakveðjur

Starfsfólk Rjúpnahæðar