Námskrá Rjúpnahæðar
Námskrá Rjúpnahæðar er lifandi plagg í stöðugri þróun og endurmetin reglulega
Námskráin er í vinnslu og verður birt þegar hún er tilbúin
Menntamálaráðuneytið gefur út Aðalnámskrá leikskóla. Hún er fagleg stefnumörkun og lýsir sameiginlegum markmiðum og kröfum sem eiga við um allt leikskólastarf. Hún inniheldur hugmyndafræði leikskóla, markmið og leiðir. Aðalnámskrá er ákveðinn rammi um leikskólastarfið og undirstaða frekari skólanámskrárgerðar.
Í Aðalnámskrá leikskóla er lögð áhersla á að efla alhliða þroska barnsins, heilbrigða lífshætti og lífsviðhorf, lífsleikni og sjálfstraust þess. Í leikskóla skal barnið ávallt vera í brennidepli og gert er ráð fyrir að barnið sé hæfileikaríkur og getumikill einstaklingur sem kann, getur og vill.
Aðalnámskrá leikskólans má finna hér.