Frjáls leikur

Leikurinn er lífstjáning barnsins þar sem barnið lærir margt sem enginn getur kennt því, svokallað sjálfsnám. Leikurinn býður upp á flæði, nýja þekkingu, tilfinningar, leikni og umburðarlyndi. Frjáls leikur er sjálfsprottinn þar sem leiknum er stjórnað af börnum en ekki af þeim fullorðnu, án takmarkana raunveruleikans þar sem allar hugmyndir eru réttar og allt er mögulegt.

Á svæði frjálsa leiksins í sumarskóla Rjúpnahæðar má finna margs konar efnivið sem ýtir undir sköpunarkraft og leikni barnanna. Sem dæmi má nefna krítar sem lita heiminn öllum regnbogans litum, sápukúlur sem geta skapað ótrúlegustu heima, brennibolta og ýmislegt fleira.